Seinni opnunarfundur tilboða í eftirlit með gerð Norðfjarðarganga milli Eskifjarðar og Norðfjarðar var í dag, 4. júní 2013.

Norðfjarðargöng-yfirlitsmynd
Val bjóðanda/ráðgjafa fór fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og bar bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda/ráðgjafa og verðtilboð.
Í útboðslýsingu kemur m.a. fram að ráðgjafi þurfi að ná að lágmarki 70 stigum af 100 mögulegum í hæfnismati. Að því skilyrði uppfylltu þá gildi verðtilboð 100%. Við mat á hæfi ráðgjafa er tekið tillit til menntunar, reynslu og verktilhögunar og var vægi matsatriða í heildarmati á hæfi: Verktilhögun (25%) og starfslið (75%).
Á opnunarfundinum var lesin upp hæfiseinkunn hvers bjóðanda og náðu allir bjóðendur lágmarkinu, en ansi var þetta nú langt frá því sem við hjá GeoTek og Eflu fengum 😉 og síðan voru lesnar upp tilboðsupphæðir ásamt kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar.
Í töflunni hér að neðan eru niðurstöður útboðsins, þ.e. niðurstaða hæfnismats og tilboðsupphæðir.
Bjóðandi |
Hæfnismat |
Tilboð kr. |
Hlutfall (%) |
GeoTek og Efla |
94,5 |
499.955.000 |
91,73 |
Verkís og VSÓ |
75,0 |
488.914.000 |
89,71 |
Hnit |
80,5 |
431.308.315 |
79,14 |
Áætlun Vg |
|
545.000.000 |
100,00 |
Við óskum Hniturum til hamingju með tilboðið en hryggjumst jafnframt yfir því hvert stefnir og að tilboð sem eru rétt um eða undir 80% af kostnaðaráætlun séu orðin raunin í dag.
Þess má til gamans geta að ef enn gilti sú regla hjá opinberum verkkaupum að hæfi sé metið til lokaeinkunnar þá væri niðurstaðan önnur. Í einu af síðustu verkum Vegagerðarinnar þegar hæfi og verð voru hvort tveggja metin til heildareinkunnar þá gilti hæfnismat 65% og verðtilboð 35% í heildareinkunn. Sá aðili sem fékk hæstu heildareinkunn fékk þá verkið.
Miðað við þá reglu hefði niðurstaðan verið eins og fram kemur í töflunni hér að neðan.
Bjóðandi |
Heildareinkunn |
GeoTek og Efla |
91,6 |
Verkís og VSÓ |
79,6 |
Hnit |
87,3 |